Lýsing
Kominn á lager í öllum litum !!
19.900 kr.
Rafrænar heyrnarhlífar sem veita 32 dB SNR vörn. Hin háþróaða rafeindatækni hlífarinnar gerir henni kleift að nema og endurflytja nákvæmlega heyranleg hljóð meðan á veiði stendur, þar með talið mannlegar raddir. Hlífarnar eru útbúnar hljóðmagnara sem eykur styrk umhverfishljóða.
Eyrnahlífarnar eru þéttar og hannaðar með þægindi í huga, þannig að þær trufla ekki þegar byssan er sett upp við öxl. Þær eru með frönskum rennilási (Velcro) á hliðum til að setja á merki ofl.
Í mörg ár hefur Beretta, ásamt þróunar- og rannsóknadeild sinni, stöðugt fjárfest í hönnun tæknilega háþróaðra aukahluta í samstarfi við iðnaðaraðila, til að vernda heyrn og sjón skotmanna og veiðimanna.
Eftir samstarf við sérfræðinga og umfangsmiklar sviðsprófanir með keppnisskoturum hefur Beretta þróað sérstakar línur af hlífðargleraugum og heyrnarhlífum (eyrnahlífar og eyrnatappar) fyrir bæði almenna notendur og fagmenn.
Samfelld leit að nýrri tækni og nákvæm athygli á smáatriðum tryggir hátt verndarstig og áreiðanlega frammistöðu.
32 dB SNR heyrnarvörn
Tæknileg gögn um hljóðdeyfingu:
H: 34 dB
M: 29 dB
L: 23 dB
SNR: 32 dB
Mjúk yfirborðsáferð með gúmmíhúð („soft touch“)
Virkar með 2 AA rafhlöðum (rafhlöður fylgja ekki)
100% Acrylonitrile-Butadiene-Styrene (ABS)
Kominn á lager í öllum litum !!