Lýsing
Swarovski fjarsjá með 56mm framlinsu og 17-40x stækkun. Mjög létt og meðfærilegt tæki, aðeins 258mm langt og ekki skaðar að þyngdin er aðeins 980 grömm. Fáanlegur sem bein túpa CTC eða með 45°vinkli ATC. Val um grænt eða appelsínugult útlit, nema beina túban aðeins í grænu. „Field of view“ á 1,000 metrum er 62-34 metrar eftir stækkun, minnsti fókus er á 3,4 metrum og ljósflæði er 88%.